Um Serbíu

Serbia er á miðvesturhluta Balkanskagans. Til vestur er Bosnía-Herzegónía og slavneski hluti Króatíu.  Í norðri er Ungverjaland, Rúmenía og Búlgaría, Makedónía í austri og Albanía í suðri.  Flatarmál Serbíu er 115.995 km².  
Flest landamæri júgóslavnesku ríkjanna voru dregin á 20. öld á landsvæðum fyrrum keisaradæmis Ausurríkis-Ungverjalands og Ottomanaveldisins, þar sem flókin þjóðernisdeigla hafði myndast.  Mikill fjöldi serba býr utan núverandi Serbíu, einkum meðal króata og bosnía (fyrrum kallaðir múslimar) í Króatíu og Bosníu-Herzegóvínu.  Talsverður fjöldi Ungverja, króata og Rúmena býr meðal serba í norðanverðu Vojvodinahéraði í Serbíu og fjölmennur en samþjappaður hópur Albana býr í suðurhluta Kosovohéraðs. 
   Eftir síðari heimsstyrjöldina veitti kommúnistastjórnin þessum svæðum takmarkað sjálfstæði, heimastjórn, og púslaði saman sambandsríki á þeim grunni.  Vojvodianhéraðið er 21.507 km² og Kosovohérað 10.885 km².